Núna má ég til að skrifa svolítið
Ósköp gengur þetta nú hægt hjá mér. Hlutirnir ganga nú bara sinn vana gang hjá mér sjálfri en það gildir ekki um Dedda. Hann er kominn í nýja vinnu. Kokkur á leikskóla. Það held ég að hljóti
að verða gaman fyrir hann. Hann hefur konu sér til hjálpar. Hún er pólsk og honum líkar vel við hana. Hún er á aldur við mig. Þetta er frekar stór skóli, börnin eru 100 og síðan 30 fullorðnir.
Hann er að vinna frá 8 að morgni til 4 á daginn og síðan frí allar helgar. Þá hefur hann góðan tíma til að hvíla sig. Mér líst vel á fyrirtækið og vona að allt gangi nú vel. Mig langar að sauma eitthvað fallegt á ömmubarnið mitt fyrir jólin. Einhverjum finnst þetta kannski svolítið snemma farið af stað, en þetta tekur alltaf tíma og mér finnst oft tíminn frá september og fram til jóla undarlega fljótur að fara. Ég keypti í gær sníðablað sem ég held að hægt sé að fá eitthvað út úr.
Það gengur vonandi sæmilega. Ætil ég fari ekki að segja þetta gott í bili. Vonandi verður ekki svona langt þangað til ég skrifa næst.